Þriðja miðvikudag í mánuði verða í sumar skógardagar hjá okkur, félögum í Skógræktarfélagi Mosfellsbæjar. Þá hittumst við, gerum skógunum okkar gagn og höfum gaman af því. Þess á milli verður ýmislegt brallað og skógarnir vel nýttir af gestum hvernig sem viðrar, því eins og við vitum þá býr lognið í skóginum.

Fyrsti vinnudagurinn verður í Hamrahlíð 20. maí klukkan 17-20. Tilvalið að taka með sér klippur og handsagir. Pulsur á grillinu í verklok. Hlökkum til að sjá kunnugleg andlit og nýir félagar alltaf velkomnir.

Miðvikudaginn 17. júní stefnum við á gróðursetningar, staður og stund auglýst síðar. Líf í lundi verður á sínum stað nálægt Jónsmessu. Miðvikudagarnir 15. júlí og 19. ágúst munu færa okkur skemmtileg verkefni. Við lokum svo sumrinu sunnudaginn 30. ágúst með pulsupartíi „í túninu heima“.